Beint í leiðarkerfi vefsins.
Rafvæðing á Íslandi hófst fyrir 100 árum. Fyrsta rafstöðin sem þjónaði almennum notendum var 9kW vatnsaflsstöð sem Jóhannes Reykdal reisti við Hamarskotslæk í Hafnarfirði árið 1904
Vatn er nauðsynlegt til að æðra líf fái þrifist og kemur við sögu á mörgum og ólíkum sviðum mannlegrar tilveru. Orkustofnun ber ábyrgð á stjórnsýslu á tveimur afmörkuðum sviðum vatnamála á Íslandi.
Á síðustu öld hafa orðið næsta ævintýralegar framfarir í jarðfræðirannsóknum hér á landi og Íslendingar komist í fremstu röð þeirra þjóða sem færa sér jarðhita í nyt.
Allt jarðefnaeldsneyti sem er notað á Íslandi er innflutt. Orkustofnun kynnir notkun á innlendum, vistvænum orkugjöfum jafnframt því sem stofnunin kemur með tillögur að leiðum til að draga úr eldsneytisnotkun.
Orkustofnun veitir leyfi til leitar, rannsóknar og vinnslu á kolvetni. Leitarleyfi eru ekki sérleyfi og er ávallt opið fyrir umsóknum um slík leyfi. Leyfi til rannsóknar og vinnslu á kolvetni eru sérleyfi og eru þau að öllu jöfnu veitt í útboðum.
Orkustofnun veitir vegagerðinni leyfi til breytinga á Svaðbælisá ásamt tilheyrandi varnargörðum
Áhugaverðar niðurstöður norsku olíumálastofnunarinnar og Háskólans í Bergen voru kynntar á vetrarmóti norrænna jarðfræðinga sem fram fór í janúar.
Lesa meiraOrkustofnun hefur, með vísan til 4. og 5. grein raforkulaga nr. 65/2003, með síðari breytingum og 4. og 5 gr. reglugerðar um framkvæmd raforkulaga, nr. 1040/2005, með síðari breytingum, veitt vatnsvirkjun í Skógargerði ehf leyfir til að reisa og reka allt að 145 kW vatnsaflsvirkjun í Rangá við Skógargerði.